Hampiðjan og Thyboron Skibssmedie A/S hafa undirritað viljayfirlýsingu um að Thyboron kaupi hleradeild Hampiðjunnar. Um er að ræða kaup á hugverkum svo sem teikningum, hönnun, vöruheitum ásamt umsóttum og útgefnum einkaleyfum tengdum toghlerum. Kaupverðið, sem er trúnaðarmál, mun að hluta til verða í formi eignarhlutar í Thyboron Skipssmedie A/S. Stefnt er að því að skrifa undir samning um kaupin á næstu vikum.
Thyboron Skipssmedie A/S var stofnað árið 1967 af Börge Stausholm Andreasen og hefur fyrirtækið frá þeim tíma sérhæft sig í smíði toghlera. Thyboron er einn stærsti toghleraframleiðandi heims og hefur framleitt og selt um 280 hlerapör fyrstu níu mánuði ársins.
Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar:
Við erum afar ánægðir með að sameina krafta okkar við Thyboron. Við höfum lagt mikið upp úr þróun á hlerum og erum vissir um að Thyboron mun halda því starfi áfram af krafti. Þá eignast þeir með kaupunum áhugaverðar umsóknir um einkaleyfi á tækni fyrir toghlera. Hampiðjan mun selja hlera frá Thyboron á þeim mörkuðum þar sem slíkt verður talið hagkvæmt fyrir viðskiptavini okkar. Við munum nú einbeita okkur að þróun á veiðarfærum fyrir sjávarútveg og svo framleiðslu og sölu á ofurtógi fyrir olíuiðnað. Þar er og verður í mörg horn að líta.
Íslenska
Español
Pусский
Hampidjan Iceland
Hampidjan New Zealand
Hampidjan Russia
Hampidjan Canada
Hampidjan Faroe Islands
Hampidjan USA
Hampidjan Baltic Lithuania
Cosmos Trawl Denmark
Swan Net Gundry Ireland
Hampidjan Australia