Hampiðjan hf. hefur í dag selt hlut sinn í danska félaginu Tyboron Skibssmedie A/S. Söluverð hlutarins er 10 milljónir danskar krónur eða sem samsvarar 1,35 milljón evra m.v. gengi dagsins. Kaupandi er Thyboron Skibssmedie Holding ApS. Bókfært virði hlutanna hjá Hampiðjunni er 182 þúsund evrur. Söluhagnaður Hampiðjunnar er því um 1,16 milljón evra. Ástæða sölunnar er eindregin ósk núverandi eigenda Thyboron Skibssmedie A/S, sem allir eru starfsmenn félagsins, að eignarhaldið sé hjá starfsmönnum þess.
Nánari upplýsingar veitir:
Hjörtur Erlendsson
forstjóri Hampiðjunnar
Sími 664 3361
Íslenska
Español
Pусский
Hampidjan Iceland
Hampidjan New Zealand
Hampidjan Russia
Hampidjan Canada
Hampidjan Faroe Islands
Hampidjan USA
Hampidjan Baltic Lithuania
Cosmos Trawl Denmark
Swan Net Gundry Ireland
Hampidjan Australia